Körfubolti

Auðvelt hjá Knicks | Sex sigrar í röð hjá Spurs

Þó svo Amar'e Stoudemire og Jeremy Lin væru meiddir og Carmelo Anthony væri haltrandi um völlinn valtaði NY Knicks yfir Orlando í nótt.

Anthony skoraði 25 stig á 26 mínútum og var maðurinn á bak við þennan sannfærandi sigur New  York-manna. Dwight Howard skoraði aðeins 12 stig fyrir Orlando.

Derrick Rose var fjarverandi í liði Bulls en þá steig Carlos Boozer upp í staðinn og sá til þess að Bulls vann öruggan sigur á Atlanta.

Öldungarnir í San Antonio gefa síðan ekkert eftir og unnu sinn sjötta leik í röð í nótt.

Úrslit:

Toronto-Denver  105-96

NY Knicks-Orlando  108-86

Charlotte-Minnesota  83-88

Cleveland-Detroit  75-87

Boston-Utah  94-82

NJ Nets-Indiana  100-84

Atlanta-Chicago  77-98

Sacramento-San Antonio  112-117

LA Clippers-Phoenix  103-86

Golden State-New Orleans  87-102

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×