Körfubolti

LeBron ætlar að spila þrátt fyrir meiðslin

LeBron James, leikmaður Miami Heat, staðfesti í gær að fingur hefði farið úr lið og það myndi eðlilega angra hann mikið næstu vikur. Engu að síður ætlar hann ekki að sleppa neinum leikjum.

"Það er verk að vinna og ég verð tilbúinn í leikinn gegn Dallas í nótt.  Ég þoli ekki að nota meiðsli sem afsökun. Ef ég er í búningi þá er ég tilbúin. Læknarnir hafa sagt mér að þetta lagist ekki nema ég hvíli og við vitum öll að ég vil ekki sjá það," sagði LeBron klettharður.

James meiddist á fingrinum í leik gegn Indiana en kláraði samt leikinn án þess að kvarta. Leikmaðurinn sagðist hafa kippt puttanum aftur í lið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×