Körfubolti

Rubio með slitið krossband | Missir af ÓL í sumar

Rubio er hér búinn að stinga Kobe Bryant af.
Rubio er hér búinn að stinga Kobe Bryant af.
Hinn stórefnilegi leikmaður Minnesota Timberwolves, Ricky Rubio, spilar ekki meira með liðinu í vetur eftir að í ljós kom í dag að hann er með slitið krossband.

Þetta er gríðarlegt áfall fyrir Úlfana sem og Rubio en hann hafði sýnt mögnuð tilþrif í vetur. Rubio meiddist í leiknum gegn Lakers á föstudag.

Rubio, sem er á sínu fyrsta ári í NBA-deildinni, verður frá í sex til níu mánuði og þar af leiðandi getur hann ekki heldur spilað með Spánverjum á Ólympíuleikunum í sumar.

Rubio, 21 árs, var valinn fimmti í nýliðavalinu og er búinn að skora 10,6 stig og gefa 8,2 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×