Körfubolti

D'Antoni hættur með Knicks | Jackson og Sloan orðaðir við starfið

D'Antoni svekktur.
D'Antoni svekktur.
Það hefur verið staðfest að Mike D'Antoni er hættur er hættur að þjálfa NY Knicks. Hann stýrði æfingu liðsins í morgun en á fundi seinni partinn er hermt að D'Antoni hafi komist að samkomulagi um að hætta.

Mike Woodson, aðstoðarmaður D'Antoni, mun stýra liðinu á meðan leitað er að nýjum þjálfara.

D'Antoni kom til félagsins árið 2008 er Knicks rak Isiah Thomas úr starfi.

Það lék allt í lyndi hjá Knicks fyrir mánuði síðan er Jeremy Lin sló í gegn og liðið vann hvern leikinn á fætur öðrum. Eftir að Carmelo Anthony kom aftur úr meiðslum fór allt í sama farið og liðið er nú búið að tapa átta af síðustu tíu leikjum.

Sagan segir að D'Antoni hafi misst klefann og leikmenn á borð við Anthony hafi ekki lengur borið virðingu fyrir honum.

Það er ekki bara Phil Jackson sem er orðaður við starfið því Jerry Sloan, fyrrum þjálfari Utah, er einnig orðaður við það.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×