Körfubolti

Rondo með tröllatölur í sigri á Lin og félögum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jeremy Lin í baráttunni við Kevin Garnett og félaga í kvöld.
Jeremy Lin í baráttunni við Kevin Garnett og félaga í kvöld. Mynd/AP
Boston hafði í kvöld betur gegn New York, 115-111, í framlengdum leik í NBA-deildinni í körfubolta.

Rajon Rondo var með þrefalda tvennu í annað skiptið í síðustu þremur leikjum sínum en hann var með átján stig, 20 stoðsendingar og sautján fráköst í leiknum.

Jeremy Lin er nýjasta stórstjarna NBA-deildarinnar og sneri aftur til Boston þar sem hann spilaði lengi með háskólaliði Harvard. Hann náði sér í tvær villur á fyrstu þremur mínútum leiksins og skoraði alls fjórtán stig á 32 mínútum. Hann nýtti aðeins sex af sextán skotum sínum úr opnu spili.

Paul Pierce skoraði 34 stig fyrir Boston, þar á meðal mikilvægan þrist skömmu fyrir lok venjulegs leiktíma sem tryggði Boston framleningu.

Ray Allen skoraði svo tvær mikilvægar körfur í framlengingunni, í bæði skiptin eftir stoðsendingu Rondo, og fór langt með að tryggja Boston sigurinn í leiknum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×