Körfubolti

LeBron auglýsir kleinuhringi og ís í Asíu

Það verða eflaust teknar einhverjar myndir af James í Asíu.
Það verða eflaust teknar einhverjar myndir af James í Asíu.
Körfuboltakappinn LeBron James er einn þekktasti íþróttamaður heimsins og hann hefur nú gert samning við tvö stór fyrirtæki um að auglýsa vörur þeirra í Asíu.

Um er að ræða Dunkin Donuts kleinhringi og ís frá Baskin Robbins en flestir ættu að kannast við vörurnar.

Dunkin Donuts hefur gefið út að samningurinn sé til tveggja ára og að LeBron muni að minnsta kosti fá eina milljón dollara fyrir.

Má fastlega gera ráð fyrir að hann troði kleinuhringjum ofan í körfuhringi í tilvonandi auglýsingaherferð.

Hún mun fara fram í Kína, Tævan, Indlandi og Suður-Kóreu. James mun einnig heimsækja löndin á vegum fyrirtækjanna.

Dunkin Donuts er með yfir 5.000 staði í Asíu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×