Körfubolti

Bulls á siglingu | Love fór hamförum

Derrick Rose.
Derrick Rose.
Chicago Bulls vann í nótt sinn sjöunda leik í röð í NBA-deildinni. Derrick Rose fór á kostum í liði Bulls og skoraði 35 stig.

Þar af lykilkörfu þegar 20 sekúndur voru eftir. Sú karfa kláraði leikinn. Carlos Boozer skoraði 13 og Joakim Noah skoraði 11 stig og tók 18 fráköst.

Oklahoma vann góðan sigur á Dallas og Minnesota minnti á sig með sterkum sigri á Clippers. Þar fór Kevin Love algjörlega hamförum. Hann skoraði 29 stig og tók 17 fráköst. Blake Griffin skoraði 26 stig og tók 12 fráköst.

Úrslit:

Toronto-Orlando  88-92

Washington-Golden State  100-120

Cleveland-Utah  100-109

Chicago-Indiana  92-72

Milwaukee-Philadelphia  97-93

Oklahoma-Dallas  95-91

Minnesota-LA Clippers  95-94

Denver-Sacramento  119-116

Portland-New Orleans  86-74

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×