Körfubolti

Rasheed Wallace æfir með Miami Heat | Ekki búinn að ákveða neitt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rasheed Wallace
Rasheed Wallace Mynd/Nordic Photos/Getty
Rasheed Wallace er ekki alveg tilbúinn að leggja NBA-körfuboltaskóna ef marka má nýjustu sögusagnir í bandarískum fjölmiðlum. Wallace átti farsælan feril en hefur ekki spilað í NBA-deildinni í að verða tvö ár.

Rasheed Wallace var næstum því búinn að semja við Los Angeles Lakers í síðasta mánuði en hefur verið að æfa undanfarið með Miami Heat. Wallace er orðinn 37 ára gamall en hefur ekki spilað síðan að hann lék með Boston Celtics tímabilið 2009-10.

Heat og Lakers eiga það sameiginlegt að þurfa hjálp undir körfunni og hinn 211 sm kraftframherji/miðherji Rasheed Wallace er með 14,6 stig og 6,7 fráköst að meðaltali á ferlinum. Hann varð meðal annars NBA-meistari með Detroit Pistons 2004.

Wallace er ekki tilbúinn að gefa neitt út og vill halda framtíðarplönum sínum utan fjölmiðla fari svo að hann ákveði að taka skóna ekki af hillunni. Wallace var með 9,0 stig og 4,1 frákast að meðaltali á 22,5 mínútum þegar hann lék með Boston 2009-10.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×