Körfubolti

Fréttamaður ESPN rekinn fyrir niðrandi ummæli um Lin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jeremy Shu-How Lin er á allar vörum þessa dagana.
Jeremy Shu-How Lin er á allar vörum þessa dagana. Nordic Photos / Getty Images
Íþróttastöðin ESPN í Bandaríkjunum hefur sagt upp starfsmanni og sett annan í tímabundið leyfi fyrir að nota niðrandi orð um körfuknattleikskappann Jeremy Lin hjá New York Knicks.

Báðum starfsmönnum var refsað fyrir að nota orðið „chink" í umfjöllun sinni um Lin. Orðið þykir niðrandi um fólk af kínverskum uppruna.

Starfsmaðurinn sem missti starf sitt setti orðið í fyrirsögn eftir tap Knciks gegn New Orleans Hornets á föstudagskvöldið. Fyrirsögnin var aðeins á vef ESPN í rúman hálftíma um miðja nótt vestanhafs áður en henni var breytt. Það var þó nóg til að hún komst í fréttirnar.

Starfsmaðurinn sem er í 30 daga leyfi frá störfum notaði orðið í spjalli sínu við Knicks-goðsögnina Walt Frazier nokkrum dögum fyrr.

„Við biðjumst aftur afsökunar, sérstaklega Hr. Lin. Afrek hans eru mikils virði fyrir samfélag Bandaríkjamanna af asískum uppruna, þeirra á meðal starfsmanna ESPN. Með sjálfskoðun, bættri ritstjórn og viðbrögðum við uppbyggilegri gagnrýni munum við gera betur í framtíðinni," segir í fréttatilkynningu frá ESPN.

Lin, sem er uppalinn í Palo Alto í Kaliforníu en á ættir sínar að rekja til Taívan, svaraði spurningum blaðamanna um málið eftir leik Knicks gegn Mavericks í nótt.

„Ég er ekki viss um að þetta hafi verið vísvitandi en þeir hafa beðist afsökunar. Frá mínum bæjardyrum séð er þetta úr sögunni," sagði Lin og sagði að fólk yrði að læra að fyrirgefa.

NBA

Tengdar fréttir

Jeremy Lin fór á kostum | Durant skoraði 51 stig fyrir Oklahoma

Jeremy Lin heldur sínu striki hjá New York Knicks í NBA deildinni en nýliðinn skoraði 28 stig og gaf 14 stoðsendingar í 104-97 sigri Knicks gegn meistaraliði Dallas Mavericks í New York í gærkvöld. Þetta var áttundi sigur Knicks í síðustu 9 leikjum. Dirk Nowitzki skoraði 34 stig fyrir Dallas sem hafði unnið sex leiki í röð. Kevin Durant fór á kostum í liði Oklahoma í gær þegar hann skoraði 51 stig.

Lin biður fjölmiðla um að gefa ættingjum sínum í Taívan andrými

Jeremy Lin átti enn einn stórleikinn í nótt í sigri New York Knicks á meisturum Dallas Mavericks. Í viðtölum að leik loknum bað Lin fjölmiðla um að sýna nærgætni gagnvart ættingjum sínum í Taívan þar sem ríkir mikið fjölmiðlafár vegna frammistöðu Lin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×