Körfubolti

Margir vilja horfa á Lin | Met Jordan fallið á MSG-sjónvarpsstöðinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jeremy Lin.
Jeremy Lin. Mynd/Nordic Photos/Getty
MSG-sjónvarpsstöðin sem sýnir leiki New York Knicks nýtur heldur betur góðs af Jeremy Lin æðinu því aldrei hafa fleiri horft á deildarleik á stöðinni en í síðustu tveimur útsendingum liðsins frá leikjum Knicks-liðsins.

MSG fór fyrst að skrá niður áhorf veturinn 1988-89 og leikir New York Knicks á móti New Orleans á föstudagskvöldið og á móti New Jersey á mánudagskvöldið settu nýtt áhorfendamet. New York liðið tapaði þeim reyndar báðum en vann Dallas í millitíðinni en sá leikur var í beinni á ABC-sjónvarpsstöðinni.

Áhorfið á Lin er þegar búið að slá út áhorfið á leikinn þegar Michael Jordan kom fyrst aftur í Madison Square Garden eftir að hafa tekið fram körfuboltaskóna á ný eftir hafnarboltaævintýrið sitt. Jordan skoraði 55 stig í leiknum sem fram fór 28. mars 1995 og þar til að LINflúensan fór að ganga í New York þá höfðu aldrei fleiri horft á MSG-sjónvarpsstöðina.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×