Körfubolti

David Stern valdi Rajon Rondo í Stjörnuleikinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rajon Rondo.
Rajon Rondo. Mynd/Nordic Photos/Getty
David Stern, yfirmann NBA-deildarinnar í körfubolta, hefur valið Rajon Rondo, leikstjórnenda Boston Celtics, til að leysa af Joe Johnson hjá Atlanta Hawks, í Stjörnuleiknum sem fer fram í Orlando á sunnudaginn.

Joe Johnson var valinn í leikinn en getur ekki spilað vegna meiðsla. Það kemur í hlut David Stern að velja menn verði forföll í liðunum.

Rajon Rondo fékk fréttirnar á 26 ára afmælisdegi sínum en hann mátti þó ekki spila á móti Oklahoma City Thunder í gær af því að hann tók út leikbann fyrir að kasta boltanum í dómara.

Rajon Rondo er með 14,8 stig og 9,5 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur en þetta verður þriðja árið í röð sem hann tekur þátt í Stjörnuleik NBA-deildarinnar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×