Körfubolti

Lakers bauð Bynum fyrir Howard

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Howard í baráttunni með Orlando Magic
Howard í baráttunni með Orlando Magic MYND:NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Peter Vecsey blaðamaður á New York Post segist hafa heimildir fyrir því að Los Angeles Lakers hafi boðið miðherjan Andrew Bynum í skiptum fyrir miðherjan Dwight Howard hjá Orlando Magic en Magic hafi hafnað því og óskað eftir bæði Bynum og Pau Gasol í skiptum fyrir besta varnarmann deildarinnar undanfarin tímabil.

Sögusagnir og vangaveltur hafa einkennt NBA tímabilið og Dwight Howard. Samningur Howard við félagið rennur út í sumar og óskaði hann eftir því að vera skipt frá félaginu í upphafi tímabilis. Hann er þó enn leikmaður Orlando nú þegar hápunktur Stjörnuleikshelgarinnar í borginni nálgast, sjálfur Stjörnuleikurinn sem verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport frá miðnætti.

Forráðamenn Lakers segja ekki koma til greina að skipta báðum stóru mönnunum sínum fyrir Howard og svo virðist sem forráðamenn Magic séu tilbúnir að bíða og sjá hvort Howard framlengi samning sinn við félagið í sumar þar sem hann getur fengið mun meiri pening fyrir að vera áfram í Orlando heldur en ef hann ákveði að róa á önnur mið.

Orlando hefur þar til 15. mars að ákveða hvað skuli gera í þessum efnum en eftir þann dag verður ekki hægt að skipta honum og hann verður frjáls ferða sinni að loknu tímabilinu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×