Körfubolti

Bryant með brákað nef og vægan heilahristing

Kobe Bryant, aðalstjarna NBA liðsins LA Lakers, er með brákað nef eftir viðskipti sín við Dwayne Wade leikmanna Miami Heat í Stjörnuleiknum í Orlando í gær. Forráðamenn Lakers greindu frá því að Bryant færi í skoðun hjá háls – nef og eyrnalækni í dag.

Fréttavefurinn Yahoo Sports greinir frá því að Bryant hafi einnig fengið vægan heilahristing. Samkvæmt nýjum reglum NBA deildarinnar þarf Bryant að fara í ítarlega rannsókn áður en NBA deildin gefur honum leikheimild til að leika á ný. Um er að ræða nýjar reglur sem eiga að vernda leikmenn ef grunur vaknar að um heilahristing sé að ræða.

The Salt Lake Tribune greinir frá því að Bryant hafi ekki farið í viðtöl eftir leikinn vegna verkja í höfði sem hann fékk í leiknum eftir höggið frá Wade.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×