Körfubolti

James til í að taka þátt í troðslukeppninni fyrir eina milljón dollara

James treður í Stjörnuleiknum.
James treður í Stjörnuleiknum.
Troðslukeppnin þessa Stjörnuhelgina þótti ekki sérstaklega merkileg. Þess utan voru þáttakendur næstum óþekktir leikmenn NBA-deildarinnar. Margir sakna þess þegar stjörnur- og troðslukóngar deildarinnar tóku þátt í keppninni og hún var virkilega áhugaverð.

Nú virðast leikmenn deildarinnar taka sig svo hátíðlega að það er nánast hallærislegt að vera með í keppninni eftir að hafa náð einu ári í deildinni.

Einn helsti háloftafugl deildarinnar, LeBron James, sýndi glæsileg tilþrif í sjálfum Stjörnuleiknum þar sem hann bauð upp á flottar troðslur sem hefðu átt fullt erindi í sjálfa troðslukeppnina.

Hans viðhorf til keppninnar endurspeglar kannski stöðuna í deildinni en James segist vera til í að taka þátt í keppninni ef hann fær eina milljón dollara fyrir.

Slagorðið "I love this game" á ekki alltaf vel við í NBA-deildinni. Sumir leikmenn virðast ekki elska leikinn nógu mikið nema þeir fái almennilega greitt fyrir.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×