Körfubolti

Wade bað Kobe afsökunar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bryant og Wade í stjörnuleiknum.
Bryant og Wade í stjörnuleiknum. Mynd/AP
Dwayne Wade segir að hann hafi beðið Kobe Bryant afsökunar á að hafa nefbrotið hann í stjörnuleik NBA-deildarinnar um helgina. Hann segir að um óviljaverk hafi verið að ræða.

Wade baðst fyrst afsökunar í leiknum sjálfum og svo aftur eftir leikinn. „Þetta var óheppilegt. Ég myndi aldrei vilja slasa einhvern í svona leik, sérstaklega í atviki eins og þessu sem var mjög slysalegt."

„Ég baðst afsökunar enda var þetta óviljandi. Þetta hefði verið allt annað mál ef ég hefði gert þetta af ásetningi."

Þetta atvik vakti einna mesta athygli um helgina og voru einhverjar getgátur um að Wade hefði ekki beðist afsökunar. Wade sagði þær með öllu rangar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×