Körfubolti

Treyjunúmer Péturs og Shaq tekið úr umferð hjá Lakers

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Shaq og Kobe Bryant mynduðu svakalegt teymi hjá Lakers þrátt fyrir að vera sjaldnast skoðanabræður.
Shaq og Kobe Bryant mynduðu svakalegt teymi hjá Lakers þrátt fyrir að vera sjaldnast skoðanabræður. Nordic Photos / AFP
Forráðamenn Los Angeles Lakers hafa tilkynnt að treyja Shaquille O'Neal, númer 34, verði tekin úr umferð á næstu leiktíð. Pétur Guðmundsson spilaði með sama númer á treyju sinni á 9. áratugnum hjá Lakers.

Shaq lagði skóna á hilluna síðastliðið sumar eftir 19 ára feril í NBA-deildinni. Á átta árum hjá Lakers komst liðið fjórum sinnum í úrslit deildarinnar og vann titilinn í þrjú skiptanna.

Shaq verður áttundi leikmaður Lakers til að fá treyju sína hengda upp í rjáfur í Staples-höllinni í Los Angeles. Wilt Chamberlain (13), Elgin Baylor (22), Gail Goodrich (25), Magic Johnson (32), Kareem Abdul-Jabbar (33), James Worthy (42) og Jerry West (44) eru hinir sjö.

Shaq spilaði í treyju númer 32 hjá Orlando Magic áður en hann söðlaði um og gekk til liðs við Lakers. Því númeri gat hann ekki haldið þar sem treyjan hafði verið tekin úr umferð til heiðurs Johnson.

Eftir frábæran tíma hjá Lakers gekk Shaq til liðs við Miami Heat. Ósætti hans við þáverandi liðsfélaga sinn, Kobe Bryant, spilaði stóran þátt í vistaskiptunum. Eitthvað virðast þeir félagar þó hafa sleikt sár sín og samið frið því Shaq sagði nýverið að Bryant væri sá besti í sögu Lakers. Bryant sagði við það tilefni að þeir félagar myndu eflaust setjast niður einn daginn og rifja upp góðu dagana hjá Lakers.

Þess má til gamans geta að Pétur Guðmundsson spilaði í treyju númer 34 hjá Lakers á árunum 1986-1987.

NBA

Tengdar fréttir

Shaq óskaði Kobe til hamingju

Kobe Bryant varð á dögunum fimmti stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar frá upphafi og tók þar með fram úr Shaquille O'Neal. Þeir voru lengi samherjar hjá LA Lakers.

NBA í nótt: Kobe náði áfanga en Lakers tapaði

LA Lakers mátti sætta sig við tap gegn Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Kobe Bryant náði þó merkum áfanga í leiknum. Alls fóru tíu leikir fram í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×