Körfubolti

NBA í nótt: Ótrúleg frammistaða Lin gegn Lakers

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lin í baráttunni við Kobe Bryant.
Lin í baráttunni við Kobe Bryant. Nordic Photos / Getty Images
Fyrir viku síðan vissu fáir hver Jeremy Lin var en í nótt gekk hann nánast einn síns liðs frá margföldu meistaraliði LA Lakers. Hann skoraði 38 stig fyrir New York Knicks sem vann sjö stiga sigur, 92-85.

Lin hefur átt lygilega viku. Hann fékk óvænt tækifæri hjá Mike D'Antoni í byrjunarliði New York fyrir viku síðan og nýtti það heldur betur vel. Hann skoraði þá 25 stig í sigri liðsins á New Jersey og svo 29 stig í næsta leik gegn Utah.

En leikurinn í nótt toppaði allt. Hann var algjörlega óstöðvandi, skoraði sem fyrr segir 38 stig og gaf þar að auki sjö stoðsendingar. Hann hefur nú skorað 89 stig í fyrstu þremur byrjunarliðsleikjum á ferlinum sem er það mesta síðan að ABA- og NBA-deildirnar voru sameinaðar árið 1976.

Þetta var fjórði sigur Knicks í röð þrátt fyrir að þá vanti bæði Carmelo Anthony og Amar'e Stoudemire. Lin hefur einfaldlega verið allt í öllu en næst stigahæsti leikmaður liðsins í gær var Iman Shumpert með tólf stig.

Kobe Bryant reyndi hvað hann gat í leiknum til að halda sínum mönnum á floti. Hann skoraði 34 stig en var með slæma skotnýtingu og hitti úr aðeins ellefu af 29 skotum sínum úr opnu spili. Pau Gasol var með sextán stig og tíu fráköst en Andrew Bynum átti skelfilegan leik og skoraði aðeins þrjú stig.

Oklahoma City vann Utah, 101-87, þar sem að Russell Westbrook skoraði 28 stig og Kevin Durant nítján. Utah hefur nú tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum.

Chicago vann Charlotte, 95-64, þó svo að Derrick Rose hafi verið frá vegna meiðsla. Joakim Noah skoraði sautján stig og tók fjórtán fráköst en fyrirstaðan var ekki mikil í leiknum enda Charlotte með verstan árangur allra liða í NBA-deildinni.

Dallas vann Minnesota, 104-97. Kevin Love spilaði með Minnesota á ný eftir tveggja leikja bann en mátti játa sig sigraðan gegn Dirk Nowitzky og félögum. Dirk skoraði 33 stig en Love 32.

Úrslit næturinnar:

Toronto - Boston 86-74

Philadelphia - LA Clippers 77-78

Washington - Miami 89-106

Charlotte - Chicago 64-95

Orlando - Atlanta 87-89

Detroit - New Jersey 109-92

Cleveland - Milwaukee 112-113

New York - LA Lakers 92-85

Memphis - Indiana 98-92

New Orleans - Portland 86-94

Minnesota - Dallas 97-104

Utah - Oklahoma City 87-101

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×