Körfubolti

Óvæntur sigur Hamars í vesturbænum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Anton
Hamarskonur komu heldur betur á óvart í Iceland Express-deild kvenna með því að vinna sterkt lið KR í vesturbæ Reykjavíkur í dag, 72-69. Alls fóru þrír leikir fram í dag.

Njarðvík kom sér aftur á sigurbraut með sigri á ahukum í Hafnarfirði, 71-67, og Snæfell vann svo lið Vals á útivelli, 88-82.

Allir leikir voru því nokkuð jafnir og spennandi í dag en topplið Keflavíkur getur aftur aukið forystu sína á toppi deildarinnar á morgun með sigri á botnliði Fjölnis.

Valur-Snæfell 82-88 (29-30, 16-24, 13-21, 24-13)

Valur: Melissa Leichlitner 29/5 fráköst, Lacey Katrice Simpson 13/15 fráköst/4 varin skot, María Ben Erlingsdóttir 12/5 fráköst, Þórunn Bjarnadóttir 10, Guðbjörg Sverrisdóttir 9, Kristrún Sigurjónsdóttir 4, Hallveig Jónsdóttir 3/4 fráköst, María Björnsdóttir 2.

Snæfell: Jordan Lee Murphree 22/9 fráköst, Kieraah Marlow 21/10 fráköst/7 stoðsendingar, Hildur Sigurdardottir 16/7 fráköst, Hildur Björg Kjartansdóttir 12/7 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 12/8 fráköst, Björg Guðrún Einarsdóttir 3, Alda Leif Jónsdóttir 2/8 fráköst/6 stoðsendingar/3 varin skot.

Haukar-Njarðvík 64-71 (25-20, 9-24, 17-19, 13-8)

Haukar: Margrét Rósa Hálfdánardóttir 28/6 fráköst, Hope Elam 12/9 fráköst, Jence Ann Rhoads 12/8 stoðsendingar, Guðrún Ósk Ámundardóttir 8, María Lind Sigurðardóttir 2, Sara Pálmadóttir 2/5 fráköst/3 varin skot.

Njarðvík: Shanae Baker-Brice 21/10 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Lele Hardy 12/13 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 9, Ólöf Helga Pálsdóttir 9, Salbjörg Sævarsdóttir 8/4 fráköst, Ína María Einarsdóttir 6, Aníta Carter Kristmundsdóttir 3, Sara Dögg Margeirsdóttir 3.

KR-Hamar 69-72 (23-19, 17-16, 14-18, 15-19)

KR: Margrét Kara Sturludóttir 22/13 fráköst/5 stoðsendingar/3 varin skot, Hafrún Hálfdánardóttir 21, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 15/6 fráköst, Erica Prosser 5/5 fráköst/7 stoðsendingar, Rannveig Ólafsdóttir 4/4 fráköst, Anna María Ævarsdóttir 2.

Hamar: Katherine Virginia Graham 26/12 fráköst, Samantha Murphy 22/5 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdóttir 9/5 fráköst, Marín Laufey Davíðsdóttir 6/5 fráköst, Álfhildur Þorsteinsdóttir 4/10 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 3, Jenný Harðardóttir 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×