Körfubolti

NBA í nótt: Lin hetja New York á ný

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jeremy Lin fagnar í leiknum í nótt.
Jeremy Lin fagnar í leiknum í nótt. Mynd/AP
Jeremy Lin var enn og aftur lykilmaður í liði New York Knicks sem vann sinn fimmta leik í röð, í þetta sinn gegn Minnesota Timberwolves, 100-98.

Lin spilaði reyndar skelfilega í seinni hálfleik en fór á vítalínuna þegar 4,9 sekúndur voru eftir og skoraði mikilvægt stig.

Hann skoraði alls 20 stig í leiknum, gaf átta stoðsendingar og tók sex fráköst. Alls ekki slæmar tölur en hann skoraði aðeins fimm stig í seinni hálfleik og hitti þá úr einu af þrettán skotum úr opnu spili.

Lin hefur skotið á stjörnuhimininn á augabragði en fyrir rúmri viku var þessi kappi nánast óþekktur. Í þessum fimm leikjum hefur hann skorað minnst 20 stig í hverjum leik og vakið gríðarlega athygli í Bandaríkjunum.

New York var sjö stigum undir þegar tæpar sjö mínútur voru eftir en Lin og félagar náðu að síga fram úr á lokakaflanum. Steve Novak jafnaði metin með þriggja stiga skoti þegar 36 sekúndur voru eftir en hann var alls með fimmtán stig í leiknum.

Kevin Love skoraði 32 stig og var með 21 frákast fyrir Minnesota sem fékk tvö tækifæri til að tryggja sér sigurinn á síðustu fimm sekúndum leiksins.

LA Clippers vann Charlotte, 111-86, þar sem þeir Chris Paul, Blake Griffin og DeAndre Jordan voru allir með tvöfaldar tvennur. Paul var með átján stig og fjórtán stoðsendingar á aðeins 28 mínútum.

Griffin var með 21 stig og tíu fráköst og Jordan ellefu stig og tólf fráköst.

Charlotte hefur tapað fjórtán leikjum í röð sem er félagsmet auk þess sem félagið er komið langt á veg með að jafna NBA-metið í þessum efnum.

Dallas vann Porltand, 97-94, í tvíframlengdum leik. Dirk Nowitzky skoraði 20 stig fyrir Dallas.

Úrslit næturinnar:

Charlotte - LA Clippers 86-11

Indiana - Denver 109-113

Cleveland - Philadelphia 84-99

New Jersey - San Antonio 89-103

Minnesota - New York 98-100

Dallas - Portland 97-94

Milwaukee - Orlando 94-99

Sacramento - Phoenix 84-98

NBA

Fleiri fréttir

Sjá meira

×