Körfubolti

Kobe og Vanessa kannski að taka saman á ný

Kobe og Vanessa þegar allt lék í lyndi.
Kobe og Vanessa þegar allt lék í lyndi.
Bandarískir slúðurmiðlar velta því upp í dag að Kobe Bryant gæti verið að taka aftur saman við fyrrum eiginkonu sína, Vanessu. Aðeins er 61 dagur síðan þau skildu.

Vanessa var mætt á leik Lakers og Atlanta í gær og hún fór svo fyrir utan klefa Lakers eftir leik þar sem hún beið eftir Kobe.

Vanessa fékk 75 milljónir dollara og þrjár glæsivillur við skilnaðinn. Hún er því í ágætis málum.

Má búast við því að þetta mál verði heitt í slúðurmiðlunum næstu daga.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×