Körfubolti

Melo segist ekki vera eigingjarn | Vill samt taka síðasta skotið

Melo í leik gegn Lakers.
Melo í leik gegn Lakers.
Carmelo Anthony, leikmaður NY Knicks, tekur það nærri sér að fólk skuli tala um að hann sé eigingjarn leikmaður. Hann segir það ekki vera rétt.

"Þessi umræða er kjaftshögg. Enginn sem ég hef spilað með myndi halda slíku fram," sagði Melo ákveðinn. "Ég er bara mannlegur og skil ekki hvaðan þetta kemur. ég veit vel að ég er ekkert eigingjarn leikmaður."

Menn eru mikið að velta því fyrir sér hvort hann geti spilað með Jeremy Lin sem hefur tekið að sér forystuhlutverk í liðinu í fjarveru Anthony.

Anthony segist vel geta spilað með Lin en neitar því ekki að hann vilji enn taka lokaskotið fyrir Knicks í jöfnum leikjum.

"Auðvitað vil ég taka síðasta skotið. Ég hef verið að gera það síðustu níu ár og hitt úr ansi mörgum."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×