Körfubolti

Endurkomusigrar hjá Bulls og Clippers

Úr leik Bulls og Celtics í nótt.
Úr leik Bulls og Celtics í nótt.
Aðeins þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Þar bar hæst að Chicago skildi leggja Boston af velli án Derrick Rose.

Frábær 20-6 kafli í fjórða leikhluta tryggði Bulls Sigurinn. Carlos Boozer og Luol Deng báðir með 23 stig fyrir Bulls í nótt. Kevin Garnett var sterkastur í liði Celtics með  18 stig og 10 fráköst.

Clippers átti einnig frábæran lokakafla, 22-11, er liðið kom til baka og vann fínan sigur á POrtland. Þetta var þriðji leikur liðanna á þrem dögum.

Blake Griffin átti stórleik fyrir Clippers og skoraði 21 stig og tók 14 fráköst. Chris Paul hitti ekki úr skoti fyrstu þrjá leikhlutana en kom svo sterkur uppog skoraði 13 stig.

Úrslit:

Indiana-NJ Nets  93-88

Chicago-Boston  89-80

Portland-LA Clippers  71-74

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×