Körfubolti

Lin tekur þátt í stjörnuhelginni

Jeremy Lin.
Jeremy Lin.
Jeremy Lin, leikmaður NY Knicks, mun taka þátt í stjörnuhelgi NBA-deildarinnar eftir allt saman. Búið er að bæta honum í hópinn í leik efnilegra leikmanna á uppleið.

Búið var að velja 18 leikmenn í þennan leik en það var gert áður en Lin skoraði 136 stig í fimm fyrstu leikjum sínum sem byrjunarliðsmaður í deildinni. Slíkar tölur hafa ekki sést í deildinni síðan NBA sameinaðist ABA árið 1976.

Það var því mikil pressa á NBA að bæta Lin við hópinn og nú hefur NBA gefið eftir enda erfitt að halda stjörnuhelgi án áhugaverðasta leikmanns deildarinnar um þessar mundir.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×