Körfubolti

NBA: Tíu sigrar í röð hjá Spurs

Tony Parker og félagar i Spurs eru í banastuði.
Tony Parker og félagar i Spurs eru í banastuði.
Fjórir leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt og þar bar helst til tíðinda að San Antonio Spurs vann sinn tíunda leik i röð og Nets vann óvæntan sigur á Bulls.

Litlu munaði reyndar að LA Clippers hefði stöðvað sigurgöngu Spurs því liðið var þrem stigum yfir og með boltann þegar 9,5 sekúndur voru eftir af leiknum.

Chris Paul tapaði boltanum, Spurs jafnaði og þvingaði fram framlengingu þar sem Spurs var sterkara.

Nets batt enda á átta leikja taphrinu með ótrúlega auðveldum sigri á arfaslöku liði Bulls. Nets komst yfir, 22-3, og leit aldrei til baka.

Úrslit:

LA Clippers-San Antonio  100-103

Chicago-NJ Nets  85-97

Memphis-Golden State  104-103

Portland-Atlanta  97-77

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×