Körfubolti

NBA í nótt: Kobe náði áfanga en Lakers tapaði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kobe bregður á leik með Andrew Bynum.
Kobe bregður á leik með Andrew Bynum. Mynd/AP
LA Lakers mátti sætta sig við tap gegn Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Kobe Bryant náði þó merkum áfanga í leiknum. Alls fóru tíu leikir fram í deildinni.

Bryant skoraði 28 stig í leiknum og færði sig þar með fyrir ofan Shaquille O'Neal í fimmta sætið yfir stigahæstu leikmenn deildarinnar frá upphafi. Kobe og Shaq voru lengi samherjar hjá LA Lakers en sá síðarnefndi lagði skóna á hilluna í fyrra.

Bryant hefur skorað alls 28.601 stig á ferlinum og vantar nú tæp tvö þúsund stig til að ná Wilt Chamberlain sem er í fjórða sæti listans. Kareem Abdul-Jabbar er efstur með 38.387 stig.

Philadelphia vann leikinn, 95-90. Kobe skoraði þessi 24 stig sem þurfti til að bæta metið í fyrri hálfleik en aðeins fjögur í þeim síðari. Klikkaði hann á níu af tíu síðustu skotum sínum í fjórða leikhluta.

Lou Williams sá fyrir sigri sinna manna en hann skoraði fjórtán af 24 stigum sinna manna í fjórða leikhluta. Þar af setti hann niður mikilvæga þriggja stiga körfu undir lokin sem fór langt með að tryggja sigurinn.

Philadelphia hefur nú unnið þrettán af sextán leikjum sínum á heimavelli.

New York vann Utah, 99-88, þrátt fyri að hafa verið án þeirra Amare Stoudemire og Carmelo Anthony lengst af í leiknum. Anthony meiddist eftir sex mínútna leik en Stoudemire var hjá fjölskyldu sinni í Flórída en Hazell, eldri bróðir hans, lést í umferðarslysi í gær.

Jeremy Lin var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu og skoraði 28 stig fyrir New York. Steve Novak skoraði nítján stig en Al Jefferson var stigahæstur hjá Utah með 22 stig.

LA Clippers vann Orlando, 107-102, í framlengdum leik. Chris Paul skoraði 29 stig, þar af ellefu í fjórða leikhluta og framlengingu. Blake Griffin og Chauncey Billups skoruðu átján stig hvor en Clippers hefur unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum. Dwight Howard skoraði 33 stig fyrir Orlando.

Úrslit næturinnar:

Philadelphia - LA Lakers 95-90

Washington - Toronto 111-108

Orlando - LA Clippers 102-107

New Jersey - Chicago 87-108

New York - Utah 99-88

Atlanta - Phoenix 90-99

Memphis - San Antonio 84-89

New Orleans - Sacramento 92-100

Denver - Houston 90-99

Portland - Oklahoma City 107-111

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×