Körfubolti

Tímabilið mögulega búið hjá Billups

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Chauncey Billups er hér studdur af velli í gær.
Chauncey Billups er hér studdur af velli í gær. Mynd/AP
Sigur LA Clippers gegn Orlando í NBA-deildinni í nótt mun reynast fyrrnefnda liðinu mögulega afar dýrkeyptur því líkur eru á að Chauncey Billups verði frá út tímabilið vegna meiðsla.

Billups varð fyrir meiðslum á hásininni á vinstri fæti í leiknum. „Mér leið eins og að einhver hefði sparkað í mig," sagði Billups við Los Angeles Times eftir leikinn. „Ég veit ekki hvort að hún sé slitin en þetta lítur ekki vel út."

Clippers vann leikinn, 107-102, eftir framlengingu en liðið ætlaði sér stóra hluti á tímabilinu. Liðið fékk bæði Chris Paul og Billups og var með Blake Griffin fyrir.

Paul segir að það yrði skelfilegt að missa Billups. „Hann er besti bakvörðurinn sem ég hef spilað með síðan ég byrjaði að spila í NBA-deildinni. Ég treysti honum fyrir hverju sem er, hvort sem er innan vallarins eða utan hans."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×