Tónlist

Guðmundur Péturs á Faktorý

Guðmundur Pétursson.
Guðmundur Pétursson.
Guðmundur Pétursson gítarleikari heldur tónleika á Faktorý á morgun, fimmtudag. Með honum leika Pétur Ben á gítar og selló, Styrmir Haukson á hljóðgerfla og slagverk, Valdi Kolli á bassa og Kristinn Snær Agnarsson á trommur.

Guðmundur mun leika efni af plötunni Elabórat sem kom út fyrir jól og hefur nú þegar hlotið lofsamlega gagnrýni. Meðal annars gaf Trausti Júlíusson gagnrýnandi henni fjórar stjörnu og kallaði hana framsækið og flott verk í dómi í Fréttablaðinu og hér á Vísi. Hlekk á dóminn má finna fyrir neðan.

Tónleikarnir á Faktorý hefjast klukkan 22. Nánari upplýsingar má finna á viðburðarsíðu þeirra á Facebook.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.