Körfubolti

LeBron hjólar oft í vinnuna | Mætti á hjóli í Chicago-leikinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James.
LeBron James. Mynd/Nordic Photos/Getty
LeBron James hjólar oft í vinnuna, æfingar hjá NBA-körfuboltaliðinu Miami Heat, og finnst það ekkert tiltökumál.

Bandarískir fjölmiðlamenn tóku hinsvegar kipp þegar þeir sáu einn besta leikmann NBA-deildarinnar mæta á hjóli í leik Miami Heat og Chicago Bulls á sunnudaginn.

James hefur efni á að kaupa flottustu og dýrustu bílana í boði á markaðnum en ef þú ert á ferðinni í Miami-borg þá eru kannski meiri líkur á því þú rekist á Kónginn á hjóli heldur en bíl.

James sagðist aðspurður ekkert skilja allt fjaðrafokið í kringum það að hann hjólaði í vinnuna enda velji hann oftar hjólið frekar en bílinn þegar kemur að því að drífa sig út í íþróttahús.

James hefur alltaf verið mikill hjólreiðaáhugamaður og hefur skipulagt nokkrar hjólreiðakeppnir í Akron í Ohio-fylki sem hafa verið haldnar til að styrkja góð málefni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×