Körfubolti

NBA í nótt: Miami vinnur enn án Wade

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Það er ýmislegt reynt til að stöðva LeBron James.
Það er ýmislegt reynt til að stöðva LeBron James. Nordic Photos / Getty Images
Fjarvera Dwyane Wade virðist engin áhrif hafa á stjörnum prýtt lið Miami sem vann enn einn sigurinn í NBA-deildinni í körfubolta í nótt - í þetta sinn gegn Philadelphia, 113-92.

Wade hefur nú misst af þremur leikjum í röð vegna ökklameiðsla og alls sex leikjum á tímabilinu. Miami hefur unnið alla þessa sex leiki en Wade er þó einn allra besti leikmaður deildarinnar.

Chris Bosh skoraði 30 stig fyrir Miami í leiknum og LeBron James 28 stig auk þess að taka níu fráköst. Leikurinn í nótt var aldrei spennandi en Lou Williams skoraði flest stig Philadelphia, 22 talstins.

Mesta spennan í nótt var í leik New York og Denver en tvíframlengja þurfti leikinn. Danilo Gallinari, leikmaður Denver, og Carmelo Anthony hjá New York voru að mætast í fyrsta sinn sem þessi tvö lið skiptust á þessum leikmönnum og hafði sá fyrrnefndi betur í nótt.

Gallinari skoraði 37 stig í leiknum og sá til þess að New York tapaði sínum sjötta leik í röð, þó svo að það hafi staðið tæpt.

Anthony var hjá Denver í sjö og hálft ár og skaut nánast linnulaust í leiknum. Hann hitti ekki úr fjórtán af fyrstu sautján skotum sínum í leiknum en náði að hitta úr fjórum síðustu skotum sínum í fjórða leikhluta og tryggja sínum mönnum framlengingu. En það dugði ekki til. Hann skoraði alls 25 stig í leiknum.

Hvorki Derreck Rose né Joakim Noah voru með Chicago í nótt vegna meiðsla en liðið vann samt góðan sigur á Charlotte, 95-89. Carlos Boozer skoraði 23 stig fyrir Chicago í leiknum, þar af sautján í síðari hálfleik.

Meistararnir í Dallas unnu New Orleans, 83-81, en Lamar Odom var í fyrsta sinn í byrjunarliði Dallas á tímabilinu þar sem Dirk Nowitzky var fjarverandi. Hann skoraði sextán stig í leiknum.

Jason Terry setti niður tvö vítaköst á lokasekúndum leiksins sem tryggði Dallas sigur.

Minnesota náði ekki að fylgja eftir góðum sigri gegn LA Clippers í fyrrinótt og tapaði fyrir Utah, 108-98. Paul Millsap skoraði 26 stig í leiknum, þar af tólf í fjórða leikhluta.

Úrslit næturinnar:

Miami - Philadelphia 113-92

Atlanta - Cleveland 121-94

New York - Denver 114-119

Detroit - Portland 94-91

Chicago - Charlotte 95-89

Memphis - Sacramento 129-95

Houston - San Antonio 105-102

Dallas - New Orleans 83-81

Oklahoma City - New Jersey 84-74

Utah - Minnesota 108-98

NBA

Fleiri fréttir

Sjá meira

×