Körfubolti

Vanessa Bryant fær öll þrjú hús hjónanna í LA og 9,2 milljarða

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kobe Bryant
Kobe Bryant Mynd/AP
Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers og ein stærsta stjarna NBA-deildarinnar í körfubolta, stendur í skilnaði og brandarískir fjölmiðlar hafa nú grafið það upp hversu mikið fyrrum eiginkona hans, Vanessa Bryant, fær í sinn hlut.

Vanessa Bryant hefur ekki yfir miklu að kvarta ef þessar upplýsingar eru réttar en auk þess að fá 75 milljónir dollara inn á bankareikninginn sinn þá heldur hún öllum þremur stórhýsum hjónanna á Newport-ströndinni. 75 milljónir dollara eru rúmlega 9,2 milljarðar íslenskra króna samkvæmt núverandi gengi.

Villur hjónanna á Newport-ströndinni eru um 18,8 milljónir dollara virði og það er ljóst að Kobe Bryant þarf nú að leita sér að nýju húsi í Los Angeles en ekki fylgir sögunni hvar hann hefur búið að undanförnu.

Skilnaður gekk mjög hratt fyrir sig því Vanessa Bryant sótti um skilnað í desember. Þau höfðu verið gift í tíu ár en talsvert hefur verið slúðrað um meint framhjáhald Kobe.

Spekingar í Bandaríkjunum segja að þessi rausnarlegi hluti Vanessu og hversu hratt þetta gekk fyrir sig bendi til þess að Kobe sé tilbúinn að fórna miklu fyrir að einkalíf hjónanna verði ekki gerð opinbert í réttarsalnum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×