Körfubolti

Keflavík lagði Hauka - Valur, Hamar og Njarðvík með sigra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jaleesa Butler var stigahæst í liði Keflavíkur í dag.
Jaleesa Butler var stigahæst í liði Keflavíkur í dag. Mynd/Anton
Keflavík heldur fjögurra stiga forskoti á toppi Iceland Express-deildar kvenna í körfuknattleik eftir 78-75 heimasigur á Haukum. Valskonur unnu óvæntan sigur á KR, Hamar lagði Fjölni og Njarðvík vann útisigur á Snæfell.

Haukar mættu ákveðnari til leiks í Keflavík í dag. Liðið leiddi í hálfleik með 16 stigum og í góðum málum. Eftir jafnan þriðja leikhluta settu heimakonur í gírinn í þeim fjórða og unnu að lokum þriggja stiga sigur, 78-75. Jaleesa Butler skoraði mest heimakvenna eða 24 stig. Hope Elam skoraði einnig 24 stig og tók 12 fráköst.

Í Vodafonehöllinni vann Valur stórsigur á KR 86-57. Melissa Leichlitner var stigahæst hjá heimakonum með 21 stig en næst kom Guðbjörg Sverrisdóttir með 17 stig. Hjá gestunum var Sigrún Sjöfn Ámundadóttir atkvæðamest með 13 stig og 8 fráköst.

Hamar vann fimm stiga sigur á Fjölni í Grafarvoginu, 76-81. Hamar komst í góða forystu með frábærum þriðja leikhluta sem liðið vann með 16 stigum. Heimakonur gerðu hvað þær gátu til þess að klóra í bakkann en náðu gestunum ekki. Brittney Jones fór á kostum í liði Fjölnis, skoraði 36 stig auk þess að taka 12 fráköst. Samantha Murphy og Katherine Graham skoruðu 20 stig hvor fyrir Hvergerðinga.

Þá vann Njarðvík öruggan sigur á Snæfell í Stykkishólmi. Petrúnella Skúladóttir skoraði 29 stig fyrir gestina og Shanae Baker-Brice skoraði 27 stig auk þess að taka 13 fráköst. Kieraah Marlow skoraði mest fyrir heimakonur eða 24 stig.



Tölfræðin úr leikjunumKeflavík-Haukar 78-75 (18-21, 7-20, 24-20, 29-14)

Keflavík: Jaleesa Butler 24/10 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 20/7 fráköst, Shanika Chantel Butler 14/6 stoðsendingar, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 11/5 fráköst, Helga Hallgrímsdóttir 7/7 fráköst, Hrund Jóhannsdóttir 2.

Haukar: Hope Elam 24/12 fráköst/4 varin skot, Jence Ann Rhoads 21/9 fráköst/6 stolnir, Íris Sverrisdóttir 12/4 fráköst, Margrét Rósa Hálfdánardóttir 7/5 stoðsendingar, María Lind Sigurðardóttir 4, Guðrún Ósk Ámundardóttir 4, Gunnhildur Gunnarsdóttir 3.

Valur-KR 86-57 (19-14, 24-15, 21-10, 22-18)

Valur: Melissa Leichlitner 21/5 stoðsendingar/5 stolnir, Guðbjörg Sverrisdóttir 17/6 fráköst, Lacey Katrice Simpson 14/17 fráköst/6 stolnir, Þórunn Bjarnadóttir 11, Kristrún Sigurjónsdóttir 10, María Ben Erlingsdóttir 10/10 fráköst/3 varin skot, Ragnheiður Benónísdóttir 2, Berglind Karen Ingvarsdóttir 1.

KR: Hafrún Hálfdánardóttir 14, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 13/8 fráköst, Erica Prosser 12/5 fráköst, Margrét Kara Sturludóttir 8/10 fráköst/6 stoðsendingar, Bryndís Guðmundsdóttir 5, Kristbjörg Pálsdóttir 3, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 2.

Fjölnir-Hamar 76-81 (21-28, 12-14, 10-26, 33-13)

Fjölnir: Brittney Jones 36/5 fráköst/12 stoðsendingar, Birna Eiríksdóttir 21/5 fráköst, Bergdís Ragnarsdóttir 9/10 fráköst, Eva María Emilsdóttir 4, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 2, Erla Sif Kristinsdóttir 2/4 fráköst, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2/6 fráköst.

Hamar: Samantha Murphy 20/9 fráköst/5 stoðsendingar, Katherine Virginia Graham 20/6 fráköst/8 stoðsendingar/6 stolnir, Marín Laufey Davíðsdóttir 12/11 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdóttir 11/7 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 6, Jenný Harðardóttir 4, Álfhildur Þorsteinsdóttir 4, Kristrún Rut Antonsdóttir 2, Dagný Lísa Davíðsdóttir 2.

Snæfell-Njarðvík 60-84 (12-19, 16-23, 20-24, 12-18)

Snæfell: Kieraah Marlow 24/7 fráköst, Hildur Sigurdardottir 12/10 fráköst/6 stoðsendingar, Jordan Lee Murphree 7/4 fráköst/5 stoðsendingar, Alda Leif Jónsdóttir 6/5 fráköst/3 varin skot, Björg Guðrún Einarsdóttir 5/4 fráköst, Hildur Björg Kjartansdóttir 4/4 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 2/5 fráköst.

Njarðvík: Petrúnella Skúladóttir 29, Shanae Baker-Brice 27/13 fráköst/6 stoðsendingar, Lele Hardy 18/20 fráköst/8 stoðsendingar, Eyrún Líf Sigurðardóttir 3, Ólöf Helga Pálsdóttir 3/4 fráköst, Harpa Hallgrímsdóttir 2/5 fráköst, Sara Dögg Margeirsdóttir 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×