Körfubolti

Enn tapar Lakers á útivelli og skorar minna en 100 stig

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bryant er eftir leikinn sá leikmaður í sögu Lakers sem hefur skorað flest stig af vítalínunni.
Bryant er eftir leikinn sá leikmaður í sögu Lakers sem hefur skorað flest stig af vítalínunni.
Los Angeles Lakers heldur áfram slæmu gengi sínu á útivelli í NBA-körfuboltanum. Liðið tapaði 100-89 gegn Milwaukee Bucks í nótt og hefur tapað sjö af átta leikjum sínum á útivelli í deildinni.

Kobe Bryant átti stórleik hjá Lakers og skoraði 27 stig auk þess að gefa 9 stoðsendingar og taka 8 fráköst en það dugði ekki til. Þrátt fyrir að heimamenn væru án tveggja lykilmanna, Andrew Bogut og Stephen Jackson, virtist það ekki há þeim.

Þá náði Lakers ekki að rjúfa 100 stiga múrinn í þrettánda leiknum í röð. Fara þarf aftur til tímabilsins 1953-1954, áður en skotklukkann var tekin í notkun, til þess að finna jafn lágt stigaskor í sögu félagsins.

Önnur úrslit í deildinni í nótt

Philadelphia 95-74 Detroit

Charlotte 99-102 Washington

Houston 97-84 New York

Utah 96-93 Sacramento

Phoenix 86-84 Memphis

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×