Körfubolti

NBA í nótt: Fisher tryggði Lakers sigur á Dallas

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dirk Nowitzky ásamt Lakers-mönnunum Kobe Bryant og Derek Fisher í leiknum í nótt.
Dirk Nowitzky ásamt Lakers-mönnunum Kobe Bryant og Derek Fisher í leiknum í nótt. Mynd/AP
Ellefu leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt en meistarar síðustu tveggja ára, LA Lakers og Dallas Mavericks, mættust í Los Angeles. Lakers vann nauman sigur, 73-70.

Derek Fisher, sem hefur verið mikið í fréttum í sumar vegna stöðu hans sem formaður leikmannasamtakanna í NBA-deildinni, skoraði sigurkörfu leiksins þegar 3,1 sekúnda var til leiksloka en þátt setti hann niður þriggja stiga körfu.

Meistararnir í Dallas höfðu unnið fimm leiki í röð fyrir nóttina en Vince Carter fékk tækifæri til að jafna metin fyrir þá í blálokin en skot hans geigaði.

Fisher skoraði alls þrettán stig í leiknum en Kobe Bryant „aðeins" fjórtán. Hann hafði skorað 40 stig eða meira í síðustu fjórum leikjum á undan. Andrew Bynum skoraði sautján stig og var með fimmtán fráköst.

Hjá Dallas var Dirk Nowitzky stigahæstur með 21 stig en gerði sig sekan um slæm mistök þegar hann fékk dæmt á sig skref þegar 38 sekúndur voru eftir af leiknum. Lamar Odom skoraði 10 stig fyrir Dallas en hann var að spila í fyrsta sinn í Staples Center í Los Angeles eftir að hann gekk til liðs við Dallas frá Lakers í síðasta mánuði.

Oklahoma City vann Boston, 97-88, þar sem Russell Westbrook skoraði 26 stig og setti niður tvo þrista á síðustu 90 sekúndum leiksins. Kevin Durant skoraði 28 stig fyrir Oklahoma City en Paul Pierce 24 fyrir Boston.

Boston hefur nú tapað fimm leikjum í röð og er það í fyrsta sinn sem það gerist síðan að þríeykið öfluga - Pierce, Kevin Garnett og Ray Allen - kom saman hjá Celtics.

Chris Paul er meiddur og spilaði því ekki með LA Clippers sem vann samt New Jersey Nets, 101-91. Blake Griffin skoraði 23 stig og tók fjórtán fráköst fyrir Clippers.

Memphis vann óvæntan sigur á Chicago, 102-86, þar sem Rudy Gay skoraði 24 stig fyrir Memphis. Chicago hafði unnið fimm leiki í röð en var án Derrick Rose sem missti af sínum öðrum leik í röð.

Úrslit næturinnar:

New York - Orlando 93-102

Memphis - Chicago 102-86

Philadelphia - Milwaukee 94-82

Washington - Houston 106-114

Charlotte - Cleveland 94-102

New Orleans - Portland 77-84

LA Clippers - New Jersey 101-91

Atlanta - Toronto 93-84

Boston - Oklahoma City 88-97

Minnesota - Sacramento 99-86

LA Lakers - Dallas 73-70

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×