Körfubolti

Umfjöllun: Sæt hefnd hjá Hamri

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd/Daníel
Mynd/Daníel

Hamar vann virkilega góðan sigur ,54-65, gegn KR í 15.umferð Iceland-Express deild kvenna í kvöld en leikurinn fór fram í DHL-höllinni í vesturbænum. Mikið  var um tæknimistök í leiknum og liðin áttu erfitt með að finna taktinn.

Hamarsstúlkur voru samt sem áður ávallt skrefinu á undan og unnu að lokum sanngjarnan sigur. Jaleesa Butler, leikmaður Hamars var atkvæðamest í leiknum en hún skoraði 29 stig og tók 15 fráköst.

Það mátti búast við hörkuleik í DHL-höllinni í kvöld þegar tvö  af bestu liðum landsins mættust í Iceland-Express deild kvenna.

KR var fyrir leikinn í þriðja sæti deildarinnar með 18 stig en gestirnir í Hamar sátu einar á toppnum með 28 stig og voru ósigraðar í Iceland-Express deildinni í vetur. KR vann aftur á móti Hamar síðastliðin laugardag í undanúrslitum Powerade-bikarsins. Hamar hafði því harm að hefna frá tapinu gegn KR og voru án efa tilbúnar í slaginn. 

Chazny Paige Morris, leikmaður KR, var ekki í leikmannahóp liðsins í kvöld vegna meiðsla og spurning hvernig heimastúlkur ætluðu að fylla hennar skarð. 

Jafnræði var með liðunum í byrjun leiks en staðan var 6-6 þegar fimm mínútur voru liðnar af fyrsta leikhluta. Gestirnir frá Hveragerði byrjuðu þá að spila góðan varnarleik og náðu fljótlega fínu forskoti. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 11-18 fyrir Hamar. Það var greinilega að Hamarsstelpur höfðu farið vel yfir leik sinn frá því um helgina.

Heimastúlkur sóttu töluvert í sig veðrið í byrjun annars leikhluta og náðu að minnka muninn þegar leið á fjórðunginn. Margrét Kara Sturludóttir, leikmaður KR, var að spila vel og dró vagninn fyrir KR. Undir lokin af fjórðungnum settu Hamarsstelpur í gírinn og náðu að slíta sig aðeins frá KR en staðan var 19-25 í hálfleik. Eins og tölurnar gefa til kynna  þá var ekki um fallegan körfubolta að ræða í fyrri hálfleik og mikið um tæknimistök hjá báðum liðum.

KR-ingar hófu þriðja leikhlutann af krafti og virtust vera búnar að stilla miðið. Munurinn á liðunum var aðeins tvö stig þegar fjórðungurinn var hálfnaður og leikurinn galopinn. En rétt eins og í fyrri hálfleik þá gáfu Hamarsstúlkur í þegar KR-ingar fóru að nálgast þær of mikið. Jaleesa Butler, leikmaður Hamars, reyndist erfið fyrir KR-stelpur og þær réðu í raun ekkert við hana.

Þegar þremur leikhlutum var lokið var munurinn á liðunum orðin tíu stig og sigur Hamarsstúlkna var í uppsiglingu.

Í lokaleikhlutanum gerðu gestirnir útum leikinn. Fanney Lind Guðmundsdóttir , leikmaður Hamars, kom virkilega sterk inn og setti niður mikilvægar þriggja stiga körfur. Munurinn á liðinum var mestur 14 stig þegar um þrjár mínútur voru eftir.

Jaleesa Butler  fór hreinlega á kostum í leiknum og var lykillinn af sigri Hamars. Leiknum lauk því með öruggum sigri Hamars  54-65. Það var allt annað að sjá til Hamarsliðsins frá því í bikarnum um helgina og greinilegt að þær ætla sér stóra hluti í vetur.



KR-Hamar  54-65 (11-18, 8-7, 16-20, 19-20)

KR: Margrét Kara Sturludóttir  14/12 fráköst/ 4 stoðsendingar, Signý Hermannsdóttir  11/5 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 13/8 fráköst /3 stoðsendingar, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir  9/7 fráköst /3 stoðsendingar, Helga Einarsdóttir  4/9 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 2, Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir 1.

Hamar : Jaleesa Butler 29 /15 fráköst /5 stoðsendingar, Fanney Lind Guðmundsdóttir 16/3 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 10, Slavica Dimovska 4/4 fráköst/ 6 stoðsendingar, Guðbjörg Sverrisdóttir  3/5 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir  3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×