Lífið

Gróft grín og jólastuð

Stuð og stemning Arthúr bjargar jólunum í Arthur Christmas, en myndin hefur fengið frábæra dóma. Hún skartar einnig nýju jólalagi frá Justin Bieber.
Stuð og stemning Arthúr bjargar jólunum í Arthur Christmas, en myndin hefur fengið frábæra dóma. Hún skartar einnig nýju jólalagi frá Justin Bieber.
Þær eru af ólíkum meiði, kvikmyndirnar tvær sem frumsýndar verða um helgina. Annars vegar er um að ræða gáskafulla gamanmynd um orgíu og hins vegar hugljúfa jólamynd með jólasveininum, hreindýrum og helling af snjó og fallegum boðskap.

A Good Old Fashioned Orgy verður frumsýnd í Sambíóunum um helgina. Hún segir frá Eric sem elskar að halda partý í strandhúsi föður síns í Hampton. Veislurnar hafa ólík þemu og eru vel sóttar af vinum Erics sem eru ekkert síðri partýljón en hann. Nema dag einn verða þeir fyrir miklu áfalli þegar ákveðið er að selja húsið og til að kveðja veisluhúsnæðið almennilega er ákveðið að halda eitt gott lokapartý.

Og þemað að þessu sinni er; hópkynlíf eða orgía. Með aðalhlutverkið fer Jason Sudeikis en hann er hvað þekktastur fyrir leik sinn í Hangover-myndunum tveim. Myndin hefur fengið misjafna dóma, aðeins 31 prósent gagnrýnenda eru til að mynda ánægðir með hana samkvæmt rottentomatoes.com.

Hið sama verður ekki sagt um Arthur Christmas eða Jól Arthúrs. 92 prósent gagnrýnenda eru ánægðir með hana samkvæmt rottentomatoes.com en myndin útskýrir mjög skýrt og greinlega hvernig jólasveininum tekst að dreifa öllum pökkum til allra barna í heiminum. Myndin er sýnd með bæði íslensku og ensku tali, hún er í þrívídd og skartar nýju jólalagi frá Justin Bieber. - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.