Tónlist

Sonic Youth að hætta?

Sonic Youth á 30 ára starfsafmæli á þessu ári.
Sonic Youth á 30 ára starfsafmæli á þessu ári.
Mikil óvissa ríkir nú um framtíð rokksveitarinnar Sonic Youth eftir að eitt langlífasta par rokksins, Thurston Moore söngvari og Kim Gordon bassaleikari, tilkynntu um skilnað sinn eftir nærri 30 ára hjónaband. Tilkynningin kom í október þegar hljómsveitin var á tónleikaferðalagi í Suður-Ameríku. Moore og Gordon giftu sig árið 1984 þegar hljómsveitin hafði starfað í þrjú ár. Aðdáendur sveitarinnar voru því flestir jafnframt aðdáendur hjónabandsins, og haft var eftir eyðilögðum ungum manni að skilnaðurinn hefði orðið til þess að hann tryði ekki lengur á sanna ást.

Nú hefur Sonic Youth spilað síðustu tónleikana sem bókaðir voru áður en skilnaðurinn var ákveðinn, og þar með er mögulegt að sveitin hafi komið fram á sínum allra síðustu tónleikum. Aðdáendur sveitarinnar bíða nú í örvæntingu eftir fregnum um hvort þeir megi búast við áframhaldi á blómlegum þriggja áratuga ferli, en ekkert hefur heyrst úr herbúðum hljómsveitarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.