Tíska og hönnun

Selja eigin hönnun fyrir námsferð

Stúlkurnar á fyrsta ári í fatahönnun í Listaháskólanum sauma töskur og prenta á boli og munu selja varninginn til að safna fyrir starfsnámi.
Stúlkurnar á fyrsta ári í fatahönnun í Listaháskólanum sauma töskur og prenta á boli og munu selja varninginn til að safna fyrir starfsnámi. fréttablaðið/vilhelm
Við vissum að það væri dýrt að fara út í starfsnám og ákváðum því að taka höndum saman og hanna töskur og boli til að selja og reyna þannig að fjármagna ferðina okkar út,“ segir Áslaug Sigurðardóttir, nemandi á fyrsta ári í fatahönnun í Listaháskóla Íslands. Áslaug og bekkjarsystur hennar munu selja vörurnar á opnum degi í skólanum á morgun.

Venja er að nemendur fari í starfsnám til Parísar og verði sér þar úti um dýrmæta reynslu. Þeir dvelja í borginni í alls sex vikur og vinna launalaust fyrir ýmsa nafntogaða hönnuði og kynnast í leiðinni ólíkum hliðum á tískuiðnaðinum. Þar sem ferðin út getur kostað sitt ákváðu stúlkurnar að vera duglegar að safna fyrir ferðinni og eru nú í óða önn að sauma tautöskur og prenta á boli.

„Nýleg rannsókn á plastpokainnkaupum fólks sýndi að það eyddi rosalegum upphæðum í plastpoka. Okkur fannst þess vegna sniðugt að búa til taupoka til að selja því þeir eru bæði endurnotanlegir og umhverfisvænir. Við saumum töskurnar sjálfar og prentum svo myndir á þær,“ útskýrir Áslaug, sem segir myndina á töskunum vera túlkun nemendanna á hinu fræga kennileyti Parísarborgar, Eiffelturninum sjálfum.

„Við fórum á netið í leit að innblæstri og fundum nokkrar skemmtilegar myndir af Eiffelturninum sem við ákváðum að vinna með áfram.”

Alls eru átta stúlkur í bekknum og því mikil vinna sem liggur að baki því að sauma sextíu töskur og prenta myndir á þær og bolina. Áslaug segir þær þó duglegar að hjálpast að og deila á milli sín verkefnum.

Stúlkurnar munu selja vörurnar á opnum degi Listaháskólans í húsnæði skólans við Laugarnesveg á milli 11 og 16. Í leiðinni er hægt að skoða skólann og kynnast starfsemi hans nánar. Allar deildir skólans verða viðstaddar á opnum degi og meðal þess sem hægt verður að skoða eru veggspjöld og leturhönnun frá nemendum í grafískri hönnun og verkefni nemenda í vöruhönnun og arkitektúr.

Auk þess munu nemendur úr myndlistardeild vera með leiðsögn um húsið og vinnustofur sínar, nemendur í tónlistardeild skólans munu flytja lifandi tónlist og nemar á leikarabraut og samtímadansbraut verða með kynningardagskrá á klukkutíma fresti.

sara@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×