Harmageddon

Högni í Hjaltalín: Fimm bestu Nu Metal-smellirnir

Högni Egilsson söngvari Hjaltalín.
Högni Egilsson söngvari Hjaltalín.
Högni Egilsson tónlistarmaður í Hjaltalín velur hér fimm bestu smellina úr Nu Metal-tónlistarstefnunni.











1.

N 2 gether now. ft Method Man með Limp Bizkit

Eitt best heppnaða samvinnuverkefni Nu Metal-tímabilsins. Létt og leikandi lag með áberandi hipphopp-áhrifum. Óborganlegt flæði rapparans Method Man úr Wu-Tang klíkunni gerir lagið að einni af langlífustu afurðum stefnunnar.

Korn.
2.

Blind með Korn

Nu Metal-tónlistarstefnan birtist í einni sinni tærustu mynd í laginu Blind með sveitinni Korn sem kom út á upphafsplötu hljómsveitarinnar árið 1994. Leggja má sannfærandi rök fyrir því. Sérstætt samspil hljóðfæranna og fordæmislaus barkasöngur söngvarans Jonathans Davis segja allavega hálfa söguna.



3.

Change (in the house of flies) með Deftones

Deftones er sú hljómsveit sem náði að gæða hvað mestu lífi í stefnuna, með tilliti til nýsköpunar og almennra rannsókna á sviði tón- og hljóðsköpunar. Spennandi hljóðróf sveitarinnar kom þeim í fremstu víglínu sinnar kynslóðar. Change kom út á plötunni White Pony árið 2000.



4.

Lowlife með Taproot

Sjálfsdepurð og örvænting eru meginþemu eina ferðina enn. Þeir eru minni spámenn sem ná þó að lifa ágætislífi þrátt fyrir að ganga á endanum í spor þeirra sem riðu á undan.

Limp Bizkit.
5.

One step closer með Linkin Park

Hvergi náði hispurslaus tilfinningasemi bandarískrar miðstéttar að smeygja sér jafn lævíslega í gegnum viðjar varnarlausra unglinga á hnettinum eins og í líflegri dýnamík söngvarans Chesters Bennington og rapparans Mike Shonoda. Láti hver sig varða.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.