Slegist um að koma landsmönnum í jólaskapið í ár 23. september 2011 11:00 Frostrósarfólkið heldur átta tónleika þetta árið. Þeir fyrstu fara fram 3. desember.
Laugardagurinn 3. desember verður jólatónleikadagurinn mikli á höfuðborgarsvæðinu. Í Háskólabíói stíga sprelligosarnir síkátu í Baggalúti á svið á sínum árlegu aðventutónleikum en í Laugardalshöll verður öllu meira umstang; þar býður Björgvin Halldórsson landsmenn velkomna á Jólagesti sína, en meðal þeirra eru Paul Potts og Robin Gibb. Í Hörpunni þetta sama kvöld hefst síðan Frostrósamaraþonið mikla þegar fyrstu tónleikarnir af átta fara fram. Ísleifur B. Þórhallsson, sem hefur veg og vanda af jólatónleikum Björgvins, segir að það hafi komið sér í opna skjöldu þegar hann frétti af því að Frostrósir yrðu þetta sama kvöld. „Við höfum alltaf verið fyrstu helgina í desember," segir Ísleifur. Jólagestirnir hafa notið mikilla vinsælda og hefur yfirleitt selst upp á þá á ansi skömmum tíma. Ísleifur segir viðbúið að þeir bæti við aukatónleikum sunnudaginn 4. desember, sem rækjust þá einnig á við Frostrósatónleikana. Töluvert er í húfi að allt gangi eins og í sögu því eins og Fréttablaðið greindi frá í fyrra voru miðar á Jólagesti og Frostrósir keyptir fyrir tæpar 300 milljónir íslenskra króna. Ísleifur hefur þó engar áhyggjur og er rólegur yfir þessu, þeir séu búnir að fá til liðs við sig alla þá listamenn og starfsfólk sem þeir þurfi. „En mér finnst þetta lélegt."Baggalútur heldur jólatónleika í Háskólabíó 3. desember.Samúel Kristjánsson, skipuleggjandi Frostrósa, telur þennan árekstur ekki eiga eftir að koma að sök. „Við verðum með tónleikana okkar í þrjá daga þannig að fólk á alveg að geta skipulagt sig og mætt á báða tónleikana." Samúel segir að tónleikarnir hafi verið færðir yfir á þessa helgi sökum þess að þetta hafi verið einu dagarnir þar sem þeir hefðu aðgang að húsinu í nokkra daga fyrir æfingar og undirbúning. „Tíundi desember var líka eina helgin sem Sissel Kyrkjebø gat komið, þannig að svona gekk þetta upp." Hann er hins vegar efins um að tónleikahaldarar eigi eftir að gjalda fyrir þetta. „Það hefur ekki verið mikill leki á gestum á milli þessara tónleika og það eru kannski fimm til tíu prósent sem þurfa að velja." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist Veikindafríi Páls Óskars lokið Lífið Metfjöldi á Aldrei fór ég suður: „Þetta var algjör draumur“ Lífið Konfettíið enn að hrynja meðan hnéð „fimmfaldaðist“ Lífið Fréttatía vikunnar: Íþróttir, afsökunarbeiðni og bækur Lífið Sunneva og Benedikt trúlofuð Lífið Kraftaverkasaga: „Mun ég aldrei sjá þau aftur?“ Áskorun Chili Con Carne er hinn fullkomni haustréttur Matur Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Lífið Matargleði Evu: Dýrindis páskalamb Matur Fleiri fréttir „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Í skýjunum með að vera fyrstir Önnur platan komin út: Kyrrstæður heimur Kára Egils Varð að fara gubbandi í Herjólf Aldrei fór ég suður í endurbættri útgáfu Lærði að byggja sig upp og elska úr fjarlægð Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi Sjá meira