Tíska og hönnun

Hvítt, hið nýja svart

Chloé.
Chloé.
Þrátt fyrir yfirvofandi litadýrð í sumartískunni verður hvíti liturinn einnig áberandi og hafa rómantískir kjólar, hvítar blúndur og gegnsæ pils sjaldan verið heitari.

Hvítur alklæðnaður, líkt og sjá mátti hjá Chloé, Dolce & Gabbana, Alexander Wang og Issey Miyake, mun leysa af þann svarta sem hefur verið ríkjandi í vetur. Rómantískar blúnduflíkur, gólfsíð pils og fallegir hvítir kjólar verða áberandi í bland við hreinni og einfaldari stílsnið í anda Miyake.

Kveðjið litla, svarta kjólinn yfir sumarið og heilsið upp á þann hvíta. Sé fólk viðkvæmt fyrir hreinleika hvíta kjólsins má alltaf bæta úr því með gallavesti og örlitlu leðri. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.