Menning

Ásgerður flytur sönglög Bjarkar

jónas og ásgerður Langt fyrir utan ystu skóga er þriðji hljómdiskur Ásgerðar. Þar syngur hún meðal annars sönglög Bjarkar Guðmundsdóttur, sem Jónas útsetti sérstaklega að beiðni Bjarkar. Fréttablaðið/Stefán
jónas og ásgerður Langt fyrir utan ystu skóga er þriðji hljómdiskur Ásgerðar. Þar syngur hún meðal annars sönglög Bjarkar Guðmundsdóttur, sem Jónas útsetti sérstaklega að beiðni Bjarkar. Fréttablaðið/Stefán
Ásgerður Júníusdóttir messósópran syngur lög eftir Gunnar Reyni Sveinsson, Björk Guðmundsdóttur og Magnús Blöndal Jóhannsson á hljómdisknum Langt fyrir utan ystu skóga, sem nýkomin er út.

Tónskáldin þrjú eiga það sameiginlegt að dansa á mörkum klassískrar tónlistar og annarra tónlistarstefna, til dæmi djass, popps, leikhús-, kvikmynda- og raftónlistar.

Á disknum koma út í fyrsta sinn nýjar útsetningar Jónasar Sen á sönglögum Bjarkar.

Björk pantaði útsetningarnar sjálf og voru þær unnar í samráði við hana, en Jónas hefur leikið undir á hljómplötum og á tónleikaferðalögum með Björk. Einnig má á disknum finna nýjan texta eftir skáldið Sjón við fyrstu tónsmíð Bjarkar, lagið Kjarval, sem kom út á hljómplötu þegar hún var tólf ára.

Meðleikarar Ásgerðar á disknum eru Jónas Sen og Sveitin, djasskvartett sem settur var saman fyrir upptökur disksins en í honum eru Pétur Grétarsson, Þórður Högnason, Kjartan Valdemarsson og Óskar Guðjónsson.

Langt fyrir utan ystu skóga er þriðji hljómdiskur Ásgerðar Júníusdóttur. Á sínum öðrum diski, Í rökkri, flutti hún sönglög Magnúsar Blöndal Jóhannssonar en hér hafa þau verið sett í annan búning. Þá eru lög Gunnars Reynis Sveinssonar flutt í nýjum djassútsetningum Péturs Grétarssonar og Sveitarinnar. Smekkleysa gefur diskinn út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.