Menning

Þjófnaðarbálkur Eiríks

Eiríkur Örn Norðdahl.
Eiríkur Örn Norðdahl.
Út er komið ritið Ást er þjófnaður eftir Eirík Örn Norðdahl; safn ritgerða um höfundarétt, þjófnað og framtíðina í ótal hlutum, eins og segir í tilkynningu frá Perspired by Iceland sem gefur ritið út.

Bókin var samin, brotin um og prentuð á einum mánuði. Fyrstu greinina birti Eiríkur Örn á vefsvæði sínu, norddahl.org, 11. apríl en bókin kom út sléttum mánuði síðar.

Ást er þjófnaður fæst perspiredbyiceland.com og norddahl.org – sem rafbók eða pöntuð sem prentuð bók í vasabroti, á 156 síðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.