Gagnrýni

Popp í sígildum stíl

Trausti Júlíusson skrifar
Héðan í frá með Karli Hallgrímssyni.
Héðan í frá með Karli Hallgrímssyni.
Tónlist

Héðan í frá. Karl Hallgrímsson

Héðan í frá er fyrsta plata Karls Hallgrímssonar. Á henni eru átta frumsamin lög og textar, auk titillagsins sem er eftir Lisu Gutkin. Hún samdi upphaflega lagið við texta Woody Guthrie, en Karl gerði nýjan texta byggðan á texta Guthries. Platan er tekin upp á Akureyri undir stjórn Orra Harðarsonar sem útsetur lögin með Karli, en einvala lið hljóðfæraleikara spilar á Héðan í frá, þar á meðal Pálmi Gunnarsson, Davíð Þór Jónsson, Birgir Baldursson, Eðvarð Lárusson og Hjörleifur Valsson.

Tónlistin á Héðan í frá er íslenskt popp í rólegri kantinum, með smá blús- og þjóðlagakeim. Það má greina áhrif frá ýmsum af stærstu nöfnum íslenskrar poppsögu bæði í lagasmíðunum og útsetningunum, til dæmis frá Magnúsi Eiríkssyni, KK, Bubba og hljómsveitum eins og Spilverkinu eða Melchoir.

Héðan í frá er býsna góð frumraun. Lög og textar eru ágæt, útsetningar fjölbreyttar og smekklegar og hljómurinn fínn. Það er ekki verið að fara ótroðnar slóðir hér, en þetta er gæðagripur í sígildum íslenskum poppstíl. Héðan í frá verður að gera ráð fyrir Karli Hallgrímssyni.

Niðurstaða: Blús- og þjóðlagaskotið íslenskt popp frá hæfileikaríkum nýliða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×