Gagnrýni

Fjölbreyttir raftónar

Trausti Júlíusson skrifar
The Optimist með Steve Sampling.
The Optimist með Steve Sampling.
Tónlist

The Optimist - Steve Sampling.

The Optimist er fjórða plata Steve Sampling. Síðasta plata, Milljón mismunandi manns, sem kom út síðla árs 2009, var hip-hop upptökustjóraplata þar sem Steve sá um taktana, en hópur rappara skiptist á að sýna listir sínar í mismunandi lögum.

The Optimist er annarrar gerðar. Á henni eru engir textar, bara raftónlist og smá röddun á stöku stað. Steve kann þá list að búa til flotta stemningu og er sterkur í trip-hop deildinni. Nafnið á fyrsta lagi plötunnar, Entroduction, má skilja sem tilvísun í eitt helsta meistaraverk þeirrar tónlistar, Entroducing með DJ Shadow.

En Steve fer nokkuð víða á The Optimist og sýnir á sér nýjar hliðar. Það eru hæggeng lög, en líka hraðari og dansvænni stykki inni á milli. Oft tekst Steve vel upp. Ég nefni sem dæmi titillagið The Optimist sem grúvar sérstakleg vel, Distorted Contact sem stigmagnast skemmtilega og Fuck Yeah!, en í því er nett Gusgus-stemning. Á heildina litið ágæt plata frá áhugaverðum listamanni.

Niðurstaða: Steve Sampling bregst ekki bogalistin á sinni fjórðu plötu. Hægt er að kynna sér hana nánar á Gogoyoko.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×