Lífið

Dulmálslykill og drykkjurútur

Jake Gyllenhaal leikur aðalhlutverkið í Source Code, sem hefur fengið frábæra dóma. Hér er hann með Michelle Monaghan.
Jake Gyllenhaal leikur aðalhlutverkið í Source Code, sem hefur fengið frábæra dóma. Hér er hann með Michelle Monaghan.
Að venju er nóg um að vera í íslenskum kvikmyndahúsum um þessar mundir. Fyrst ber að nefna gamanmyndina Your Highness sem skartar Óskarsverðlaunakynninum James Franco og Óskarsverðlaunaleikkonunni Natalie Portman í helstu hlutverkum. Myndin gerist á miðöldum og segir frá tveimur bræðrum sem hyggjast bjarga unnustu annars þeirra úr klóm hættulegs seiðkarls. Myndin hefur fengið afleita dóma og það er ekki beint hægt að segja að Portman fylgi eftir frammistöðu sinni í Black Swan með glæsibrag ef No Strings Attached er tekin með í reikninginn.

Hið sama verður ekki sagt um Source Code, nýjustu kvikmynd Jakes Gyllenhaal. Myndin hefur fengið frábæra dóma, er meðal annars með 90 prósent á Rotten Tomatoes. Source Code segir frá Colter Stevens, sem tekur þátt í nýstárlegri tilraun hersins. Hún gerir honum kleift að komast um borð í lest, sem hryðjuverkamenn hafa í hyggju að sprengja, í líki mismunandi manna. Meðal annarra leikara má nefna Michelle Monaghan og Veru Farmiga.

Þriðja mynd helgarinnar er síðan Barney‘s Version með stórleikurunum Dustin Hoffman og Paul Giamatti. Myndin segir frá drykkfelldum sjónvarpsframleiðanda sem þarf að horfast í augu við líf sitt og fortíð. Giamatti var tilnefndur til Golden Globe-verðlauna fyrir leik sinn í myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.