Lífið

Hringlaus Bretaprins

Vilhjálmur Bretaprins vill ekki ganga með giftingarhring.
Nordicphotos/Getty
Vilhjálmur Bretaprins vill ekki ganga með giftingarhring. Nordicphotos/Getty
Nú styttist óðum í hið konunglega brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton. Tímaritið People hefur þó heimildir fyrir því að hinn tilvonandi brúðgumi neiti að bera hring á fingri.

„Það verður aðeins smíðaður einn hringur að ósk brúðhjónanna tilvonandi. Fröken Middleton fær sérsmíðaðan hring úr velsku gulli en prinsinn verður hringlaus," sagði talsmaður konungshallarinnar. Tímaritið greinir þó ekki frá því hver ástæða hringleysisins er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.