Tónlist

Syngur á plötu Arctic Monkeys

aðstoðar arctic monkeys Josh Homme, söngvari Queens of the Stone Age, syngur á næstu plötu Arctic Monkeys.
aðstoðar arctic monkeys Josh Homme, söngvari Queens of the Stone Age, syngur á næstu plötu Arctic Monkeys.
Josh Homme, forsprakki Queens of the Stone Age, syngur á væntanlegri plötu bresku sveitarinnar Arctic Monkeys. Gripurinn nefnist Suck It And See og er væntanlegur í byrjun júní.

Homme sá að mestu um upptökur á síðustu plötu Arctic Monkeys, Humbug, sem kom út árið 2009 og var hann því meira en til í aðstoða piltana á nýjan leik. Í þetta sinn syngur hann bakrödd í laginu All My Own Stunts.

„Við vildum hafa hefðbundna uppbyggingu á lögunum á plötunni,“ sagði söngvarinn Alex Turner um Suck It And See. „Við höfum alltaf reynt að hafa lögin okkar öðruvísi uppbyggð en það er ástæða fyrir því af hverju þessi hefðbundnu lög eru svona klassík.“

Arctic Monkeys ætlar að fylgja plötunni eftir með tónleikahaldi í sumar og verður til að mynda aðalnúmerið á V-hátíðinni í Bretlandi í ágúst ásamt rapparanum Eminem.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×