Körfubolti

NBA: Lakers vann Oklahoma og Boston sigraði Orlando

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Kobe Bryant, LA Lakers og Russell Westbrook leikstjórnandi Oklahoma í Staple Center í gær.
Kobe Bryant, LA Lakers og Russell Westbrook leikstjórnandi Oklahoma í Staple Center í gær. AP

Þrettán leikir fóru fram í NBA deildinni í gær. Meistaralið LA Lakers sigraði Oklahoma 101-94 en margir búast við því að Oklahoma geti blandað sér í baráttuna um efstu sætin í vesturdeildinni í vor.

Pau Gasol og Kobe Bryant skoruðu 21 stig hvor fyrir Lakers sem hefur unnið átta af síðust níu leikjum sínum. Kevin Durant, stigahæsti leikmaður deildarinnar skoraði 24 stig fyrir Oklahoma en skotnýting hans var skelfileg. Aðeins 1 af alls 8 þriggja stiga skotum hans fóru rétta leið.

Kevin Garnett úr Boston og Dwight Howard úr Orlando eigast við í Boston í gær.AP
Kevin Garnett lék með Boston á ný eftir níu leikja fjarveru vegna meiðsla. Framherjinn lét að sér kveða í 109-106 sigri liðsins gegn Orlando en þessi lið verða án efa í baráttunni um efstu sætin í austurdeildinn ásamt Miami Heat. Garnett meiddist á kálfa í lok desember og hefur hvílt frá þeim tíma.

Dwight Howard skoraði 33 stig fyrir Orlando og tók 13 fráköst en Orlando er aðeins í fimmta sæti austurdeildarinnar þessa stundina, Atlanta, Chicago, Miami og Boston eru þar fyrir ofan.

Athygli vekur að Golden State Warriors lagði New Jersey Nets í sjötta sinn í röð. Monta Ellis skoraði 26 stig og gaf 9 stoðsendingar í liði Golden State

Blake Griffin skoraði 47 stig í gær fyrir Clippers gegn Indiana. Hér er Tyler Hansbrough til varnar.AP

Blake Griffin skoraði 47 stig fyrir LA Clippers sem vann Indiana 114-107 og er það met hjá Griffin sem var nýliði í fyrra en náði ekki að spila vegna meiðsla í hné. Miðherjinn hefur tekið NBA deildina með trompi í vetur og sýnt ótrúleg tilþrif og troðslur sem gleymast seint. Griffin tók 14 fráköst og er þetta í 27 leikurinn í röð þar sem hann nær tvöfaldri tvennnu.

Þjóðverjinn Dirk Nowitzki skoraði 32 stig fyrir Dallas gegn Detroit á útivelli en það dugði ekki til. Þetta er annar leikurinn í röð hjá Nowitzki eftir hnémeiðsli.

Amare Stoudemire skoraði 41 stig á gamla heimavellinum í Phoenix þegar New York kom þar í heimsókn. Það var ekki nóg því Phoenix sigraði 129-121. Vince Carter skoraði 29 stig fyrir Phoenix og náði hann að rjúfa 20.000 stiga múrinn.



Úrslit frá því í gær:


New York - Phoenix 121-129

Washington - Utah 108-101

Memphis - Chicago 84-96

Philadelphia - Charlotte 96-92

Houston - Milwaukee 93-84

New Orleans - Toronto 93-84

Detroit - Dallas 103-89

LA Clippers - Indiana 114-107

Atlanta - Sacramento 100-98

Golden State - New Jersey 109-100

Boston - Orlando 109-106

Portland - Minnesota 113-102

LA Lakers - Oklahoma 101-94



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×