Sport

Djokovic og Federer mætast í undanúrslitum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Federer og Wawrinka takast í hendur eftir leikinn í morgun.
Federer og Wawrinka takast í hendur eftir leikinn í morgun. Nordic Photos / AFP

Opna ástralska meistaramótið í tennis er nú í fullum gangi en þeir Roger Federer og Novak Djokovic tryggðu sér í morgun sæti í undanúrslitum í einliðaleik karla.

Federer mætti í morgun landa sínum, Stanislas Warinka frá Sviss, í fjórðungsúrslitum og vann nokkuð auðveldan sigur, 6-1, 6-3 og 6-3.

Wawrinka var reyndar svo óánægður með eigin frammistöðu að hann grýtti spaðanum sínum í jörðina í miðri viðureigninni og eyðilagði hann.

Djokovic mætti Tékkanum Tomas Bedrych og vann sömuleiðis í þremur settum, 6-1, 7-6 og 6-1.

Síðari tvær viðureignirnar í fjórðungsúrslitunum fara fram á morgun en þá mætast annars vegar Alexandr Dolgopalov frá Úkraínu og Skotinn Andy Murray og hins vegar Spánverjarnir Rafael Nadal og David Ferrer.

Nadal er í efsta sæti heimslistans, Federer í því öðru, Djokovic þriðja og Murray fimmta. Robin Söderling er í fjórða sæti en hann féll úr leik í 16-manna úrslitum fyrir Dolgapalov - sá er í 46. sæti.

Wozniacki komin í undanúrslit

Fjórðungsúrslit í einliðaleik kvenna hófust einnig í dag. Caroline Wozniacki frá Danmörku tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum með sigri á Francescu Schiavone frá Ítalíu, 3-6, 6-3 og 6-3.

Hún mætir Li Na frá Kína en hún bar sigurorð af Andreu Petkovic frá Þýskalandi, 6-2 og 6-4.

Wozniacki er í efsta sæti heimslistans en Rússinn Vera Zvonareva í öðru sæti. Sú síðarnefnda mætir Petru Kvitova frá Tékklandi í fjórðungsúrslitum á morgun.

Sigurvegarinn úr þeirri viðureign mætir sigurvegaranum úr leik Agnieszku Radwanska frá Póllandi og Kim Clijsters frá Belgíu í hinni undanúrslitaviðureigninni.

Serena Williams tók ekki þátt í mótinu vegna meiðsla en systir hennar, Venus, féll úr leik í 32-manna úrslitum. Reyndar þurfti hún að hætta í miðri viðureign vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×