Körfubolti

Chris Paul og Billups byrja vel með Clippers - unnu Lakers

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Chris Paul og Chauncey Billups í fyrsta leiknum með Clippers.
Chris Paul og Chauncey Billups í fyrsta leiknum með Clippers. Mynd/Nordic Photos/Getty
Chris Paul og Chauncey Billups léku sinn fyrsta leik með Los Angeles Clippers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið vann 114-95 sigur á nágrönnunum í Los Angeles Lakers en það er mikil spennna fyrir einvígi þessara liða í vetur eftir komu sterkra leikmanna til Clippers.

Chris Paul var með 17 stig, 9 stoðsendingar, 7 fráköst og 5 stolna bolta á aðeisn 24 mínútum í leiknum og Clippers-liðið vann með 26 stigum þann tíma sem hann var inn á vellinum. Chauncey Billups hitti úr 5 af 8 skotum sínum og skoraði 23 stig á 20 mínútum en 9 stiga hans komu af vítalínunni.

Kobe Bryant skoraði 22 stig á 30 mínútum hjá Lakers en tapaði líka 7 boltum.Pau Gasol skoraði 16 stig og Andrew Bynum var með 15 stig og 12 fráköst. Metta World Peace (áður Ron Artest) klikkaði á öllum átta skotum sínum utan af velli í sínum fyrsta leik undir nýju nafni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×